Jóhanna Ása Einarsdóttir | 27. apríl 2012 |

Tóbakslaus bekkur

Undanfarnar vikur höfum við verið að vinna að lokaverkefni fyrir átakið Tóbakslaus bekkur. Á ýmsu hefur gengið og verkefnið tekið marga kollhnísa. En nú er það að smella og í morgun lögðum við lokahönd á teiknimyndasögu um unglinga sem eru að kljást við siðferðislegar spurningar sem snúa að tóbaksleysi og tóbaksnotkun.
Jóhanna Ása Einarsdóttir | 13. apríl 2012 |

8. bekk gefnar reiknivélar

Föstudaginn 13. apríl fengum við góða heimsókn, Guðmundur Björgvin Magnússon sparisjóðsstjóri, kom og færði nemendum í 8. bekk reiknivélar að gjöf. Reiknivélarnar eru fermingargjafir frá Sparisjóði Strandamanna. Þær munu koma sér vel í stærðfræðinámi þeirra í framtíðinni og munu endast þeim í gegnum framhaldsskóla líka.  
TAKK KÆRLEGA FYRIR OKKUR. 
Jóhanna Ása Einarsdóttir | 28. mars 2012 |

náttúrufræðitilraun

Í dag gerðum við tilraun í náttúrufræði. Við bjuggum til spúandi eldfjall sem spúði bláu. Allir voru mjög áhugasamir og var þetta mjög gaman. Fleiri myndir eru í myndaalbúmi.
Jóhanna Ása Einarsdóttir | 16. mars 2012 |

hvað er að gerast

Það er allt á fullu í skólanum. Allir eru mjög duglegir við að vinna. Það gengur vel í öllum fögum. Nemendur eru mjög áhugasamir og glaðir við vinnu sína. Höldum svona áfram og þá verður lífið áfram yndislegt. 
 
Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir | 07. mars 2012 |

Stóra upplestrarkeppnin

Lokahátíð stóru upplestrarkeppninnar var í dag haldin í samkomuhúsinu Baldri á Drangsnesi. Þátttakendur voru nemendur 7. bekkjar á Drangsnesi, Reykhólum og Hólmavík.  Lesnar voru þrjár umferðir, í fyrstu umferð var lesið úr Draugaslóð, skáldsögu Kristínar Helgu Gunnarsdóttur. Í annarri umferð voru lesin ljóð eftir Gyrði Elíasson og að lokum lásu nemendur ljóð sem þeir höfðu sjálfir valið.

Óhætt er að segja að í svona keppni séu allir sigurvegarar á einn eða annan hátt. Það er ekki einfalt mál að stíga á svið og lesa með tilþrifum fyrir fjölda manns og þeir sem ekki unnu til verðlauna áttu líka glæsilega spretti. Sérstaka viðurkenningu fyrir upplestur á ákveðnum texta fékk Daníel Elí Ingason Grunnskólanum á Drangsnesi. Allir þátttakendur fengu viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna og bókina Nokkur ljóð eftir Gyrði Elíasson frá Félagi íslenskra bókaútgefenda

Nemendur Grunnskólans á Hólmavík skipuðu þrjú efstu sætin í keppninni. Sigurvegarinn í ár var Jón Stefánsson, í öðru sæti var Guðjón Alex Flosason og í þriðja sæti var Íris Jóhannsdóttir.
Til hamingju!

Nemendur Grunnskólans á Drangsnesi fluttu söngatriði í hléi og stórkostlegt veislukaffi var í boði Drangsnesinga

Jóhanna Ása Einarsdóttir | 20. febrúar 2012 |

Lögregluheimsókn

Mánudaginn 20. febrúar fengum við góða heimsókn. Þá kom Hannes Leifsson lögregluvarðstjóri í heimsókn til okkar og var með kynningu á starfi lögreglumannsins. Voru krakkarnir mjög áhugasamir og höfðu undirbúið spurningar sem þau spurðu í lok kynningar. Var þetta mjög skemmtileg og fróðleg kynning á lögreglustarfinu. 
TAKK FYRIR OKKUR HANNES!

Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir | 30. janúar 2012 |

Samstarfið sigraði !

Fastur liður í vikulegri dagskrá Skólabúðanna á Reykjum er Hárgreiðslukeppni drengja. Þar keppa færustu hárgreiðslumeistarar í sinni grein og módelin eru alltaf drengir.
Samstarf skólanna á Hólmavík og Drangsnesi skilaði sigri að þessu sinni. Það var Trausti Rafn sem var valinn glæsilegasta módelið og um hárgreiðslu og förðun sáu Emilía Rós og Karen Ösp frá Drangsnesi og Ingibjörg og Harpa Dögg frá Hólmavík.

Síðustu myndir úr Reykjaskólaferðinni eru nú komnar inn í Skólamyndir Grunnskólans á Hólmavík og tilvalið að rifja upp ferðina með því að skoða þær.
Jóhanna Ása Einarsdóttir | 27. janúar 2012 |

16. - 27. janúar 2012

Vikan 16. - 20. janúar var mjög hefðbundin í skólastarfinu. Mánudagurinn var lífsleikni þar sem farið var í framkomu okkar við aðra og bekkjarreglurnar voru hafðar til hliðsjónar. Nú hafa nemendur og kennarar 7. og 8. bekkjar gert með sér bekkjarsamning og verður hann settur inn á vefinn næstu daga. Einnig var rætt um vímuefni og skaðsemi þeirra. Staðfesting var send í kjölfarið til verkefnisins tóbakslaus bekkur um tóbaksleysi hópsins. Þar eru allir að standa sig mjög vel. 
Nemendur unnu síðan vel í öllum fögum það sem eftir lifði vikunnar. Í stærðfræði eru allir að vinna í kafla 4 sem er algebra, honum á að vera lokið 14. febrúar, í íslensku er verið að vinna í lotu 4 sem á að vera lokið 1. febrúar.
Í náttúrufræði eru nemendur í 8. bekk að vinna í kaflanum og taugar líkamans og vinnur hver og einn á sínum hraða. Þeirri vinnu á að vera lokið 1. febrúar. Nemendur 7. bekkjar eru að vinna í fjórum síðustu köflum bókarinnar og ætla að vera búin með bókina 1. febrúar. Í ensku vorum við að vinna kafla um stjörnumerkin.  
Vikan 23. - 27. janúar var óhefðbundin að því leyti að við vorum án Hrafnhildar og 7. bekkjar. Við ákváðum að láta það ekkert á okkur fá og unnum vel eins og áður. Nema hvað að í þeim fögum þar sem bekkirnir eru í sömu bókum og á sama stað þá var bryddað upp á einhverju öðru til að vinna í. Nú og síðan var brjálað veður á fimmtudagsmorguninn og allt ófært þannig að aflýsa þurfti skóla og allir fengu auka frídag.
Kveðja Ása og Steinar. 
Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir | 26. janúar 2012 |

Snúðar og snældur í Reykjaskóla

Það var glatt á hjalla í kvöldhressingunni í Reykjaskóla í gær þar sem allir gæddu sér á Reykjaskólasnúðum.
Að því loknu skall á leiðindaveður, strekkingsvindur með mikilli ofankomu. Krakkar og kennarar leiddust á milli húsa í kófinu og svo sváfu menn af sér versta veðrið.
Í morgun var bjart, kalt og svolítill vindur. Síðustu kennslustundirnar standa yfir og eftir hádegið er hópmyndataka í íþróttahúsinu. Þar á eftir er valfrjáls tími og um margt skemmtilegt að velja.
Undirbúningur fyrir hárgreiðslukeppni drengja er þegar hafinn og meistarar og módel farin að ræða saman um keppnina. Í myndamöppunum frá keppni síðustu ára hafa fundist nokkrir Hólmvíkingar sem hafa sigrað keppnina.

Nokkrar myndir hafa bæst í Skólamyndir á heimasíðu Grunnskólans á Hólmavík. Kíkið endilega á þær. 
Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir | 25. janúar 2012 |

Afmæli og mikið fjör í Reykjaskóla

Afmælisbarn í skólabúðum
Afmælisbarn í skólabúðum
Í dag hefur verið sérlega gott veður í Reykjaskóla, úrkomulaust, örlítil gola og kalt. Nemendur í 6. og 7. hafa stundað skólabúðastarfið af miklum krafti.

Trausti heldur upp á afmælið sitt hér í skólabúðunum og í hádeginu stóðu allir upp og sungu afmælissönginn fyrir hann. Í tilefni afmælisins verður boðið upp á eitthvað sérstakt með kvöldkaffinu. Í kvöld er síðasta kvöldvakan. Á morgun verður valtími eftir hádegið svo hárgreiðslukeppni drengja og diskó síðasta kvöldið.

Allir eru hraustir og hressir og hafa staðið sig gríðarlega vel.

Fleiri myndir hafa verið settar inn í Skólamyndir - Reykjaskólaferð 6. og 7. bekkjar.
Fyrri síða
1
23Næsta síða
Síða 1 af 3
Eldri færslur
Nemendur Atburðir
« Maí 2012 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Næstu atburðir

Vefumsjón