A A A

Valmynd

Fréttir

Hamingjusamþykkt Strandabyggðar

Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkir Hamingjustefnu sveitarfélagsins
Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkir Hamingjustefnu sveitarfélagsins
Árið 2011 var Hamingjusamþykkt Strandabyggðar samþykkt samhljóða af sveitarstjórn á hátíðarfundi á Klifstúni. Ekki er vitað til þess að önnur sveitarfélög í heiminum eigi í sínum ranni samþykktir sem fjalla sérstaklega um hamingjuna. Fundargerð frá hátíðarfundinum má nálgast með því að smella hér. 

Hamingjusamþykkt Strandabyggðar er svohljóðandi:


Hamingjan er eitt af leiðarljósum í áframhaldandi uppbyggingu í Strandabyggð. Lífsgæði íbúa á Ströndum skipta miklu máli og þau þarf að efla með fjölbreyttum ráðum.


Ræktum hamingjuna innra með okkur og stuðlum að aukinni gleði og lífsfyllingu hjá okkar nánustu, vinum og samferðamönnum, með orðum okkar og gjörðum. Munum að bros í amstri hversdagsins getur gert kraftaverk, það getur dimmu í dagsljós breytt. Hið sama gildir um hrós og þakklæti fyrir það sem vel er gert. Jákvæð og uppbyggileg hvatning til góðra verka er varða sem vísar veginn í átt að betra samfélagi.
 

Virk þátttaka hvers einstaklings í samfélaginu er keppikefli og miklu skiptir að jákvæðni, virðing og samkennd einkenni mannlíf á Ströndum. Íhugum öll, hvert og eitt okkar, með hvaða hætti við getum lagt okkar af mörkum.
 

Gleðjumst saman, höfum hamingjuna í hávegum. Gerum alla daga að hamingjudögum.

 

Facebook

Hamingjumyndir

Vefumsjón