Nemendaverndarráđ Grunnskólans á Hólmavík
Hlutverk nemendaverndarráðs Grunnskólans á Hólmavík er að samræma skipulag og framkvæmd þjónustu við nemendur varðandi heilsugæslu, námsráðgjöf og sérfræðiþjónustu og vera skólastjóra til aðstoðar við gerð og framkvæmd áætlana um sérstaka aðstoð við nemendur. Nemendaverndarráð sér um skipulagningu á sérkennslu skólans, skiptingu tíma milli nemenda og hefur frumkvæði að allri umfjöllun um sérþarfir nemenda í skólanum.
Nemendaverndarráð Grunnskólans á Hólmavík er skipað til eins árs í senn. Á skólaárinu 2012-2013 eiga eftirtaldir fulltrúar sæti í nemendaverndarráði: Skólastjóri, sem jafnframt er formaður, fulltrúi sérkennslu, sérkennari, leikskólastjóri, skólahjúkrunarfræðingur og Félagsmálastjóri Stranda- og Reykhólahrepps.
NÁNAR UM NEMENDAVERNDARRÁÐ GRUNNSKÓLANS Á HÓLMAVÍK
TILVÍSUN VEGNA SÉRFRÆÐI- OG SÉRKENNSLUÞJÓNUSTU
SKIPURIT NEMENDAVERNDARRÁÐS
GLÆRUKYNNING UM NEMENDAVERNDARRÁÐ
