Námskeið fyrir nefndarfólk fært yfir á Café Riis
| 10. mars 2011
Námskeið fyrir fólk í nefndum og sveitarstjórn Strandabyggðar hefur verið fært úr Félagsheimilinu yfir á Café Riis. Á námskeiðinu verður m.a. farið yfir eftirfarandi þætti:
- Fundarsköp
- Undirbúning undir nefndarfundi
- Tillögugerð
- Ritun fundargerða
Þeir sem ekki eru skráðir geta enn bæst í hópinn og mætt á Café Riis. Námskeiðið hefst kl. 17:00 í dag og stendur til klukkan 20:30.