Straufínar Strandir! Hreinsunarátak - umhverfisvikur
Hreinsunarátak
- umhverfisvikur eru nú hafnar í Strandabyggð og eru fyrirtæki, stofnanir og íbúar hvattir til að taka þátt. Kvennakórinn Norðurljós reið á vaðið með
ruslatínslu meðfram vegum á vegum Vegagerðarinnar og Vinnuskólinn í Strandabyggð fegrar umhverfið á hverjum degi. Þá
hefur fjöldi íbúa lagt hönd á plóg með hreinsun í kringum bæi, tún og fjörur og
í kringum íbúðarhús og götur á Hólmavík sem er til fyrirmyndar.
Lausamunir í landi Strandabyggðar
Nýtt gámasvæði í Skothúsvík og nýtt geymslusvæði í landi Víðidalsár er ný þjónusta
við alla þá sem eiga gáma eða vantar geymslu undir tæki og tól og aðra
geymslumuni. Eru allir þeir sem vilja nýta sér þessa þjónustu beðnir um að hafa
samband við Áhaldahús Strandabyggðar.
Eftir 8. júlí 2011 verður hafist handa við að hreinsa lausamuni af lóðum og landi í eigu sveitarfélagsins Strandabyggðar sem ekki er í útleigu. Eru allir sem eiga muni á fyrrnefndum stöðum hvattir til að fjarlægja þá fyrir 8. júlí 2011.
Umhverfisdagur fyrirtækja og stofnanna á Hólmavík
Umhverfisdagur fyrirtækja og stofnanna verður haldinn fimmtudaginn 23. júní
2011. Þann dag geta fyrirtæki og stofnanir óskað eftir að starfsmenn Áhaldahúss
Strandabyggðar fjarlægi rusl. Þeir sem vilja taka þátt er bent á að hafa
samband við starfsfólk Áhaldahússins fyrir n.k. fimmtudag.
Umhverfisdagur á Hólmavík laugardaginn 25. júní
Umhverfisdagur verður haldinn á Hólmavík laugardaginn 25. júní 2011. Íbúar eru hvattir til
að hreinsa til í kringum húsin sín og á opnum svæðum í hverfum sínum.
Sorpsamlag Strandasýslu verður með opið þennan dag auk þess sem starfsmenn
Áhaldahúss munu fara um bæinn og taka rusl á eftirfarandi tímum:
- 14:00 Bláa
hverfið.
- 15:00 Appelsínugula hverfið
- 16:00 Rauða hverfið
Hreinn bær – okkur kær!