A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Straufínar Strandir! Hreinsunarátak - umhverfisvikur

| 19. júní 2011
Myndi IV.
Myndi IV.

Hreinsunarátak - umhverfisvikur eru nú hafnar í Strandabyggð og eru fyrirtæki, stofnanir og íbúar hvattir til að taka þátt. Kvennakórinn Norðurljós reið á vaðið með ruslatínslu meðfram vegum á vegum Vegagerðarinnar og Vinnuskólinn í Strandabyggð fegrar umhverfið á hverjum degi. Þá hefur fjöldi íbúa lagt hönd á plóg með hreinsun í kringum bæi, tún og fjörur og í kringum íbúðarhús og götur á Hólmavík sem er til fyrirmyndar.


Lausamunir í landi Strandabyggðar

Nýtt gámasvæði í Skothúsvík og nýtt geymslusvæði í landi Víðidalsár er ný þjónusta við alla þá sem eiga gáma eða vantar geymslu undir tæki og tól og aðra geymslumuni. Eru allir þeir sem vilja nýta sér þessa þjónustu beðnir um að hafa samband við Áhaldahús Strandabyggðar.

Eftir 8. júlí 2011 verður hafist handa við að hreinsa lausamuni af lóðum og landi í eigu sveitarfélagsins Strandabyggðar sem ekki er í útleigu. Eru allir sem eiga muni á fyrrnefndum stöðum hvattir til að fjarlægja þá fyrir 8. júlí 2011.


Umhverfisdagur fyrirtækja og stofnanna á Hólmavík

Umhverfisdagur fyrirtækja og stofnanna verður haldinn fimmtudaginn 23. júní 2011. Þann dag geta fyrirtæki og stofnanir óskað eftir að starfsmenn Áhaldahúss Strandabyggðar fjarlægi rusl. Þeir sem vilja taka þátt er bent á að hafa samband við starfsfólk Áhaldahússins fyrir n.k. fimmtudag.


Umhverfisdagur á Hólmavík laugardaginn 25. júní

Umhverfisdagur verður haldinn á Hólmavík laugardaginn 25. júní 2011. Íbúar eru hvattir til að hreinsa til í kringum húsin sín og á opnum svæðum í hverfum sínum. Sorpsamlag Strandasýslu verður með opið þennan dag auk þess sem starfsmenn Áhaldahúss munu fara um bæinn og taka rusl á eftirfarandi tímum:

- 14:00 Bláa hverfið.
- 15:00 Appelsínugula hverfið
- 16:00 Rauða hverfið

Hreinn bær – okkur kær!

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón