A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Þjóðaratkvæðagreiðsla laugardaginn 9. apríl

| 08. apríl 2011
Íþróttamiðstöðin á Hólmavík - Mynd: Jón Jónsson
Íþróttamiðstöðin á Hólmavík - Mynd: Jón Jónsson
Þjóðaratkvæðagreiðsla um samþykkt eða synjun laga nr. 13/2011 verður haldin laugardaginn 9. apríl 2011. Ein kjördeild er í Strandabyggð og verður kjörstaður í íþróttamiðstöðinni á Hólmavík. Kjörfundur hefst kl. 09:00 laugardaginn 9. apríl 2011 en kjörstaður verður opinn frá kl. 10:00 -17:00 (sbr. 93. gr. laga um kosningar til alþingis nr. 80/1987).

Sérstök athygli kjósenda er vakin á 79. gr. laga nr. 24/2000: ,,Kjósandi skal gera kjörstjórn grein fyrir sér svo sem með því að segja til sín og framvísa kennivottorði eða nafnskírteini eða á annan fullnægjandi hátt að mati kjörstjórnar. Ef hann þannig á rétt á að greiða atkvæði samkvæmt kjörstjórninni afhendir kjörstjórn honum einn kjörseðil".

Oddviti kjörstjórnar Strandabyggðar, Guðmundur Björgvin Magnússon.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón