Umhverfisnefnd
Grænfáninn - umhverfisstefna
Grunnskólinn á Hólmavík stefnir að því að vera skóli á grænni grein og flagga Grænfánanum með stolti. Grænfáninn er umhverfismerki sem nýtur virðingar víða í Evrópu sem tákn um árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu í skólum.
Umhverfissáttmáli Grunnskóla og leikskóla á Hólmavík og umhverfisstefna fyrir sameinaðan skóla verður yfirfarin haustið 2025. Umhverfisnefnd verður skipuð fyrir skólaárið 2025-2026 og heimasíða verður uppfærð samkvæmt því. Fréttir af verkefnum tengdum Grænfánanum skulu reglulega settar á heimasíðu skólans.
Umhverfisnefnd
Umhverfisnefnd Grunnskólans á Hólmavík er skipuð aðilum úr hópi nemenda og starfsfólks Grunnskólans. Nefndin fjallar um umhverfismál í skólanum, tekur ákvarðanir og mótar stefnu í takt við Grænfánann og Umhverfissáttmála skólans. Ákvörðunum nefndarinnar er fylgt eftir af starfsfólki og stjórnendum. Umhverfisnefnd fundar amk einu sinni í mánuði.
Eftirtaldir aðilar skipa Umhverfisnefnd skólaárið 2025-2026:
- fulltrúi 1.-4. bekkjar
- fulltrúi 1.-4. bekkjar
- fulltrúi 5.-7. bekkjar
- fulltrúi 5.-7. bekkjar
- fulltrúi 8.-10. bekkjar
- fulltrúi 8.-10. bekkjar
- fulltrúi foreldra
- fulltrúi starfsmanna.
- fulltrúi kennara.
- fulltrúi skólastjórnenda.
Stefnt er að uppbyggingu umhverfisstarfsins haustið 2025.
Maí 2025. Endurskoðun árlega.