A A A

Valmynd

Leyfi, forföll og veikindi

Veikindi

Öll veikindi ber að tilkynna strax að morgni í gegnum mentor eða til skólastjóra í netfangið skolastjori@strandabyggd.is. 
Veikindaforföll í íþróttum ber að tilkynna til skólans en ekki í íþróttamiðstöð. Foreldri eða forráðamaður skal tilkynna veikindi eða forföll nemenda eftir sömu leiðum og önnur veikindi.


Þurfi nemandi af heilsufarsástæðum að fá að vera inni í frímínútum skal foreldri/forráðamaður láta umsjónarkennara vita af því. Foreldrar/forráðamenn skulu einnig láta umsjónarkennara vita þegar um lengri veikindi er að ræða og fyrirsjáanlegt er að nemandi mæti ekki í skólann í nokkra daga. Ekki er æskilegt að nemendur séu utandyra, á íþróttaæfingum eða taki þátt í félagsstarfi sama dag og þeir eru í veikindaleyfi.


Fari skólasókn nemenda niður fyrir 80% á hverjum tíma skal umsjónarkennari gera foreldrum og nemendaverndarráði viðvart. Nemendaverndarráð skal fjalla um slík mál og ákvarða um frekari aðgerðir í samráði við skólastjóra.

Leyfi

Öll leyfi styttri eða lengri eða önnur forföll ber að tilkynna til skólastjóra skolastjori@strandabyggd.is eða umsjónarkennara eða með því að hringja í síma 451-3430 eins tímanlega og auðið er. 

Athugið að foreldrum ber skylda til að sjá til þess að nemandinn vinni upp það sem hann verður af vegna leyfisins. Umsjónarkennarar aðstoða foreldra og nemendur með verkefni til að vinna að í lengri leyfum. Sérstök áhersla er lögð á lestur.

Uppfært október 2019.


Bekkjavefir

Atburðadagatal

« Desember 2024 »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Næstu atburðir