Matur og nesti
Nesti
Nemendur taka með sér nesti til að borða í frímínútum klukkan 9:50. Skólinn býður einnig upp á ókeypis hafragraut í frímínútum. Eindregið er mælst til þess að nestið sé hollt og að sætindi og sykraðir drykkir séu ekki í nesti nemenda.
Hádegismatur
Öllum nemendum gefst kostur á að fá heitan mat í hádeginu en er einnig heimilt að hafa með sér nesti að heiman. Hádegisverður kemur frá Café Riis og er snæddur þar eða í skólanum. Nemendur í 1.-4. bekk borða alla daga í skólanum. Nemendur í 5.-10. bekk borða í skóla alla daga nema þriðjudaga. Skólastjóri tekur við skráningum í hádegisverð.
Hressing í frístund
Hressing í frístund 1.-4. bekkjar er brauð og álegg og/eða ávextir.
Uppfært september 2020