Ađalfundur Foreldrafélags Grunnskólans á Hólmavík
| 09. október 2013
Aðalfundur Foreldrafélags Grunnskólans á Hólmavík verður haldinn á Café Riis miðvikudaginn 16. okt. klukkan 18:00.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður Esther Ösp Valdimarsdóttir tómstundafulltrúi með erindi og einhverja óvænta uppákomu.
Í lokin gæða fundarmenn sér á gómsætum pizzum frá Báru og Kidda. Foreldrar og forráðamenn hvattir til að fjölmenna.
- Stjórnin