Arnór í 5. sćti í stćrđfrćđikeppni
| 04. apríl 2011
Í lok mars kepptu nokkrir nemendur unglingadeildarinnar í árlegri keppni þriggja efstu árganga grunnskóla í stærðfræði sem fór fram í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Mikill fjöldi nemenda úr ellefu skólum tók þátt í keppninni. Verkefnin sem lögð voru fyrir í keppninni komu frá hópi fólks sem tengist Flensborgarskóla í Hafnarfirði og að venju var sams konar keppni háð á sama tíma víðar um land. Úrslit í keppninni voru tilkynnt við athöfn á sal Fjölbrautarskólans laugardaginn 2. apríl sl. og þar kom í ljós að Arnór okkar Jónsson, nemandi í 10. bekk, lenti í 5. sæti í keppninni. Arnór fór á Akranes ásamt foreldrum sínum og tók á móti viðurkenningunni. Við erum afar stolt af Arnóri og óskum honum innilega til hamingju með árangurinn.