Bolla - bolla!
| 06. mars 2011
Nú er að hefjast ein skemmtilegasta vika ársins, að mati margra, með tilheyrandi skemmtilegheitum á bolludegi, sprengidegi og öskudegi. Á bolludaginn er nemendum velkomið að taka með sér bollu í nesti. Á sprengidag verða líklega flestir með miklifenglegar átveislur með alskonar meðlæti og á öskudag, miðvikudaginn 9. mars, er starfsdagur hér við skólann og því frí hjá nemendum. Hið vinsæla öskudagsball verður að venju í félagsheimilinu og mun foreldrafélag grunnskólans halda utan um það og auglýsa. GÓÐA SKEMMTUN!