Börn hjálpa börnum - ABC barnahjálpin
| 11. apríl 2014
Nemendur 5.6. og 7. bekkjar tóku þátt í söfnuninni Börn hjálpa börnum á vegum ABC barnahjálpar.
Þetta er 17. árið sem þessi söfnun grunnskólabarna fer fram og er hún mjög mikilvæg fjáröflun fyrir ABC barnahjálp. Fyrir afrakstur þessara safnana í gegnum árin hafa þau náð að fjármagna byggingar fjölmargra skóla og heimila fyrir fátæk börn í þróunarlöndunum.
Í ár er safnað fyrir byggingu heimavistar fyrir fátækar stúlkur í Pakistan.
Nemendur grunnskólans hafa gengið í hús á Hólmavík í vikunni og keyrt um Ísafjarðardjúp með söfnunarbauka.
Vel var tekið á móti þeim og söfnuðu þau hvorki meira né minna 47.539 kr. !
Það var þeirra síðasta verk fyrir páskafrí að leggja þessa upphæð inn á ABC barnahjálp.
Bestu kveðjur og gleðilega páska
Kristjana og Lára