Dans, dans, dans
Hrafnhildur Guđbjörnsdóttir | 17. mars 2022
Við bjóðum í dans í Íþróttamiðstöðinni 18. mars, klukkan 13:00-13:30.
Nemendur Grunnskólans á Hólmavík og eldri deildar Leikskólans hafa í vikunni stundað dansæfingar og um leið fengið þjálfun í félagsfærni hjá danskennaranum Jóni Pétri Úlfljótssyni.
Jón Pétur er okkur að góðu kunnur en hann hefur í mörg ár kennt dans eina viku á ári og þá alltaf samtímis á Hólmavík og Reykhólum.
Þið eruð öll velkomin.