Frábćr íţróttahátíđ!
| 21. janúar 2011
Hin árlega íþróttahátíð skólans fór vel fram í Íþróttamiðstöðinni á miðvikudaginn. Nemendur, starfsfólk og foreldrar skemmtu sér vel í leikjum og keppnum undir dyggri stjórn Kolbeins Skagfjörð íþróttakennara sem hélt utan um skipulag og framkvæmd hátíðarinnar. Fyrr um daginn fóru allir út að renna fyrir neðan Hólmavíkurkirkju en á hátíðinni fór fram hinn skemmtilegi klósettleikur, badmintonruna, boðhlaup, dodgeball, handbolti og trjónufótbolti. Að því loknu skelltu fjölmargir sér í sund eftir góðan og skemmtilegan íþróttadag.
Jón Jónsson fréttaritari á strandir.is tók skemmtilegar myndir af hátíðinni sem sjá má hér.
Jón Jónsson fréttaritari á strandir.is tók skemmtilegar myndir af hátíðinni sem sjá má hér.
