Göngum í skólann
| 04. október 2010
Nú er átakið okkar, Göngum í skólann, í fullum gangi. Nemendur hafa verið ótrúlega duglegir að koma gangandi og hjólandi í skólann og laufblöðunum er alltaf að fjölga á trjánum okkar á ganginum. Á miðvikudaginn ætlum við síðan að loka átakinu með sameiginlegri gönguferð kl. 11 og hressingu í boði Kaupfélags Steingrímsfjarðar, Mjólkursamsölunnar og Arion banka. Þar afhent verðlaun fyrir öflugasta hópinn en hann fær pizzuveislu frá Café Riis.