Íţróttahátíđ 30. janúar klukkan 17:00
Hrafnhildur Guđbjörnsdóttir | 29. janúar 2020
Íþróttahátíð Grunnskólans á Hólmavík og Leikskólans Lækjarbrekku verður í Íþróttamiðstöðinni Hólmavík fimmtudaginn 30. janúar klukkan 17:00.
Þetta er í fyrsta skipti sem leikskólinn tekur þátt en þrír árgangar leikskólans, börn fædd 2014, 2015 og 2016 hafa verið í íþróttakennslu frá því í haust og taka nú þátt ásamt foreldrum sínum.
Hátíðin fer þannig fram að fyrst er innganga barnanna og síðan býður hver barnahópur foreldrum sínum til leiks.
Frístund 1.-4. bekkjar selur samlokur og djús til styrktar starfsemi sinni.
Tilkynnt verður um val á íþróttamanni Strandabyggðar og hvatningarverðlaun Strandabyggðar verða afhent.
Stjórnandi íþróttahátíðarinnar er Ásdís Birna Árnadóttir.
Verið öll velkomin á íþróttahátíð.