Keppendur okkar í undankeppni Söngkeppni Samfés.
| 10. febrúar 2012
Í dag héldu 21 nemendur vestur til Súðavíkur á Vestfjarðariðil söngkeppni félagsmiðstöðva fyrir Söngkeppni Samfés sem haldin verður í kvöld. Þar keppa tíu atriði frá Vestfjörðum um að komast áfram í lokakeppnina sem haldin verður í Reykjavík fyrstu helgina í mars. Þar af eigum við þrjú glæsileg atriði en það er hún Elísa Mjöll
Sigurðardóttir sem mun syngja lagið Með þér við texta Bubba Morthens, Brynja Karen
Daníelsdóttir sem syngur lagið The Story, með íslenskum texta Arnars S. Jónssonar, og hópurinn GóGó-píurnar þau Brynja Karen Daníelsdóttir, Fannar Freyr
Snorrason, Gunnur Arndís Halldórsdóttir, Margrét Vera Mánadóttir og Sara
Jóhannsdóttir sem flytja lagið Do Lord með íslenskum texta Arnars S. Jónssonar. Það er tómstundafulltrúi Strandabyggðar sem fylgir hópnum ásamt Alfreð Gesti Símonarsyni bílstjóra og Bjarka Einarssyni sem verður fulltrúi Hólmavíkur í dómarasætinu í kvöld. Hópurinn heldur svo heim á leið eftir ball með stórstjörnunni Haffa Haff seint í kvöld. Við óskum þeim góðrar feðrar og góðs gengis í Vestfjarðakeppninni!