Kveikt á jólatrénu viđ skólann
| 07. desember 2010
Í dag, þriðjudaginn 7. desember, kl. 18:00 fer fram hátíðlega athöfn við Grunn- og
Tónskólann á Hólmavík þegar gestir frá vinabænum Hule afhenda jólatréð sem þeir
færa okkur árlega. Ljósin á trénu verða tendruð og barna- og unglingakór
Hólmavíkurkirkju mun syngja. Einnig verður almennur söngur við undirleik
gítarnemenda í Tónskólanum og flutt verða stutt ávörp. Foreldrar og nemendur eru
hvattir til að mæta, gleðjast og gæða sér á heitu súkkulaði og piparkökum og taka á móti þessari góðu gjöf.