Leiksýningin Gýpugarnagaul
Foreldrafélög leikskóla og grunnskóla hér á Hólmavík ætla að bjóða nemendum okkar í 1.-6. bekk á leiksýninguna Gýpugarnagaul í félagsheimilinu mánudaginn 12. september kl. 9. Nemendur fara með kennurum og stuðningsfulltrúum í félagsheimilið og koma með þeim aftur til baka í skólann og ljúka hefðbundnum mánudagsskóladegi.
Möguleikhúsið er á ferð um Vestfirði og sýnir Gýpugarnagaul sem fjallar um söngkonu sem ef til vill er líka álfkona, og tónlistarmaður, sem kannski er tröll, vita ekki hvaðan á sig stendur veðrið þegar til þeirra stormar glorhungruð furðupersóna í leit að risa með gullhár, ásamt vini sínum litla snjótittlingnum. Það má með sanni segja að hún setji rólyndislega tilveru þeirra á annan endann með hamaganginum í sér, en spurningin er hvort þeim tekst að hafa hemil á öllum gýpuganginum.