Nemendur í 8. og 9. bekk enduđu í topp 5 í Myndbandakeppni grunnskólanna!
| 21. nóvember 2010
Nemendur í Grunnskólanum á Hólmavík hafa unnið á haustönninni fjögur myndbönd undir leiðsögn Arnars Jónssonar og sendu þau í Myndbandakeppni grunnskólanna 2010. Myndböndin hafa heldur betur vakið athygli og var það myndband nemendanna í 8. og 9. bekk, Umhverfis jörðina á 8 dögum, sem lenti í topp 5 sætunum!
Dómnefnd skipuð þeim Katrínu Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, Valdísi Óskarsdóttur, klippara og kvikmyndagerðarkonu, Hilmari Oddssyni, rektor Kvikmyndaskóla Íslands og Helgu Viðarsdóttur, markaðsstjóra 66°NORÐUR hefur farið yfir myndböndin og valið sigurvegara.
Í eldri flokki sigraði Bjarki Kjartansson úr Lundaskóla Akureyri en hann gerði flott klippimyndband
Í yngri flokki sigraði 5. og 7. bekkur í Bíldudalsskóla en þau gerðu þögla mynd um 66°NORÐUR manninn
Myndband nemendanna í 8. og 9. bekk lenti því í 2. - 5. sæti í eldri flokkinum og óskum við öll þeim innilega til hamingju með þennan frábæra árangur!
Umhverfis jörðina á 8 dögum má sjá hér.
Þess má einnig geta að myndböndin fjögur voru einnig send í Kvikmyndakeppni grunnskólanna en útslit í þeirri keppni verða kynnt 27. nóvember nk.