Starfsdagar
| 03. október 2013
Föstudaginn 4. október og mánudaginn 7. október eru starfsdagar starfsmanna Grunn- og tónskólans á Hólmavík. Á föstudaginn taka starfsmenn þátt í skólaráðstefnu á Akrueyri sem er á vegum Símey. Á mánudaginn heimsækja tónlistarkennarar Tónlistarskólann á Akureyrir, grunnskólakennarar sækja námskeið um námsmat hjá Jóni Baldvini Hannessyni skólastjóra í Giljaskóla. Aðrir starfsmenn sitja vinnufundi með viðkomandi starfsfólki í Gilja skóla. Þessa daga er frí hjá nemendum. Skólastarf verður með hefðbundnum hætti frá og með þriðjudeginum 8. október.