A A A

Valmynd

Umhverfisþing

Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir | 09. maí 2016
Sveitarfélagið Strandabyggð heldur Umhverfisþing á Hólmavík, miðvikudaginn 11. maí nk. Á þinginu kynnir Lína Björg Tryggvadóttir verkefnisstjóri hjá Fjórðungssambandi Vestfjarða umhverfisvottunarferli Earth Check sem öll sveitarfélög á Vestfjörðum taka þátt í. Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðingur hjá UMÍS fjallar um verkefnið „Plaspokalausir Vestfirðir“ sem verið er að hleypa af stokkunum og framkvæmdastjóri Orkuseturs, Sigurður Ingi Friðleifsson talar um orkusparnað frá ýmsum hliðum. Þá mun Grunnskólinn á Hólmavík halda sinn árlega umhverfisdag í tengslum við þingið og bjóða upp á lítið leikrit, ljóðalestur, kynningu á grænfánstarfi skólans og bjóða upp á veitingar. Einnig mun Skógræktarfélag Standamanna, Sorpsamlag Strandamanna, Leikskólinn Lækjarbrekka og Náttúrustofa Vestfjarða koma að dagskránni sem má sjá hér að neðan. 

Þingið er öllum opið ungum sem öldnum og hægt er að koma á einstaka fyrirlestra eða dagskrárliði eða njóta dagskrárinnar í heild sinni. 

Dagskrá
Kl. 15:30 Opnun umhverfisþings
Andrea Kristín Jónsdóttir sveitarstjóri Strandabyggðar setur þingið. 

Kl. 15:35 Sorpsamlag Strandasýslu. 
Hvað hefur áunnist við sorpflokkun hjá Sorpsamlagi Strandasýslu? Einar Indriðason framkvæmdastjóri Sorpsamlags Strandasýslu.

Kl. 15:45 Ruslaskrímslið. 
Lítill leikþáttur, 3. og 4. bekkur Grunnskólans á Hólmavík. 

Kl. 15:55 Flagð í fóstur. 
Kynning á samstarfs- og tilraunaverkefni Náttúrustofu Vf, Skógræktar Strandasýslu og Strandabyggðar um átak gegn lúpínu innan bæjarmarka Hólmavíkur.

16:05 Grænfánaskóli - 10 ára vinna. 
Unglingadeild Grunnskólans á Hólmavík kynna Grænfánastarfið sl. 10 ára í máli og myndum. 

16:15 Skógræktarfélag Strandasýslu. 
Hallfríður Sigurðardóttir/Arlín Óladóttir 

16:25 Grænfáninn á Leikskólann. 
Hvaða þýðingu hefur það? Alma Benjamínsdóttir, skólastjóri Leikskólans Lækjarbrekku. 

16:30 Kaffihlé
Nemendur úr Grunnskólanum á Hólmavík bjóða nýstárlegar eldbakaðar veitingar niður við tjaldstæði. Umhverfissöngur skólans fluttur. 

17:00 Umhverfisvottun Vestfjarða. 
Kynning á verkefninu. Lína Björg Tryggvadóttir, verkefnisstjóri Fjórðungssambands Vestfjarða. 

17: 20 Plastpokalausir Vestfirðir. 
Stefán Gíslason umhverfisstjórnunarfræðingur UMÍS 

17:40 Tuðran. 
Kynning á verðlaunasamkeppni um gerð fjölnota innkaupapoka úr endurunnum efnum. Ásta Þórisdóttir. 

17:45 Orkusparnaður. 
Sigurður Ingi Friðleifsson, framkvæmdastjóri Orkuseturs 

18:25 Umhverfisljóð. Flutt verða nokkur ljóð Í tilefni útgáfu á umhverfisljóðabók nemenda í unglingadeild.

18:30 Þinglok. 
Andrea Kristín Jónsdóttir, sveitarstjóri slítur þingi. 

Allir eru hjartanlega velkomnir

Bekkjavefir

Atburðadagatal

« Mars 2024 »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Næstu atburðir