22. fundur Velferðarnefndar Stranda og Reykhólahrepps - 28. janúar 2014
22. fundur Velferðarnefndar Stranda og Reykhólahrepps haldinn 28. janúar 2014 að Höfðagötu 3 á Hólmavík klukkan 14.00. Mættar: Andrea Björnsdóttir (Reykhólahreppi), Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir (Strandabyggð), Bryndís Sveinsdóttir (Strandabyggð) , Jenny Jensdóttir (Kaldrananeshreppi), Hrefna Þorvaldsdóttir í síma (Árneshreppi) og María Játvarðardóttir félagsmálastjóri sem ritaði fundargerði.
1. Hækkun á fjárhagsaðstoð.
Fjárhagsaðstoð á svæðinu hefur ekki hækkað í nokkur ár og hefur dregist afturúr öðrum sveitarfélögum á landinu. Félagsmálastjóri leggur til að fjárhagsaðstoð muni hækka eftir neysluvísitölu eins og gert er í flestum sveitarfélögum landsins.
Bókun: Fjárhagsaðstoð mun hækka 1. janúar miðað við neysluvísitölu og verður sá háttur hafður á í framtíðinni.
2. Umsókn um fjárhagsaðstoð í desember – mars vegna veikinda. Samþykkt, sjá trúnarðarbók
3. Umsókn um námsstyrk í janúar – maí. Samþykkt, sjá trúnaðarbók
4. Umsókn um fjárhagsaðstoð í janúar. Samþykkt, sjá trúnaðarbók
5. Umsókn um styrk til greiðslu sálfræðiviðtala. Samþykkt, sjá trúnaðarbók
6. Umsókn um fjárhagsaðstoð vegna veikinda. Samþykkt sjá trúnaðarbók.
Fleira ekki gert og fundi slitið klukkan 15:30.
_____________________________________ ________________________________________
Andrea Björnsdóttir Bryndís Sveinsdóttir
____________________________________ ________________________________________
Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir Hrefna Þorvaldsdóttir
___________________________________
Jenny Jensdóttir