Hjólað í vinnuna
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur fyrir heilsu- og hvatningarverkefninu Hjólað í vinnuna dagana 6. – 26. maí næstkomandi í þrettánda sinn. Meginmarkmið Hjólað í vinnuna er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, hagkvæmum og umhverfisvænum samgöngumáta.
Vinsamlegast kynnið ykkur þá viðburði sem verða í gangi, þátttökureglur og þá valmöguleika sem skráningarkerfið bíður upp á inn á www.hjoladivinnuna.is
Aðalstyrktaraðili Hjólað í vinnuna er Valitor, aðrir samstarfsaðilar eru Embætti landlæknis, Rás 2, Advania, Örninn, Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar, Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn, Landssamtök hjólreiðamanna, Hjólreiðanefnd ÍSÍ, Hjólafærni, Kaffitár og Ölgerðin.
Strandabyggð hvetur íbúa, vinnustaði og velunnara til að nýta sér þetta tækifæri og taka fagnandi ´amóti vorinu með aukinni hreyfingu og hreysti.