Hunda- og kattahreinsun 2024
Heiðrún Harðardóttir | 21. nóvember 2024
Hunda- og kattahreinsun 2024
Umsóknareyðublöð varðandi skráningu hunda er hér, katta hér og listi yfir skráða hunda og ketti er hér. Ef þú sérð þitt dýr ekki skráð, þá er hægt fylla út eyðublaðið og senda til okkar á strandabyggd@strandabyggd.is ásamt mynd af dýrinu.
Skv. reglugerð og gjaldskrá er nú innheimt skráningargjald við skráningu dýrsins og síðan eftirlitsgjald árlega. Innifalið er lyf v. ormahreinsunar og hópvátrygging.
Ida Bergit Rognsvaag sinnir hreinsun á hundum og köttum í dag, fimmtudaginn 21. nóvember, í Áhaldahúsinu milli kl. 16:00 og 18:00.
Gott væri ef hundaeigendur gætu komið á milli 16:00-17:00 og kattaeigendur á milli 17:00-18:00. Hundar þurfa að vera í taumi og kettir í búri, en einnig er í boði að sækja lyfin fyrir kettina á auglýstum tíma til Idu.
Hunda- og kattaeigendur í Strandabyggð, bæði í þéttbýli og dreifbýli, eru hvattir til að mæta og nýta sér þjónustuna.
Allir hundar og kettir innan þéttbýlis skulu skráðir og bera merkingar skv. reglugerð um hunda- og kattahald sem finna má hér. Skylt er að færa hunda og ketti til hreinsunar árlega.