Sveitarstjórnarfundur 1351 í Strandabyggð
Salbjörg Engilbertsdóttir | 06. október 2023
Fundur nr. 1351 í sveitarstjórn Strandabyggðar verður haldinn þriðjudaginn 10. október kl. 16.00 í Hnyðju Höfðagötu 3, Hólmavík.
Fundardagskrá er svohljóðandi:
- Velferðarþjónusta Vestfjarða, samningur til fyrri umræðu – Til afgreiðslu
- Erindi frá Isavia vegna Egonos jarðstöðvar - Til afgreiðslu
- Erindi frá slökkviliðsstjóra, ósk um aukið fjárframlag til slökkviliðs, frh. frá fundi 1350– Til afgreiðslu
- Velferðarnefnd Stranda- og Reykhólahrepps nr. 52 frá 27. september 2023 - Til kynningar/afgreiðslu
- Sterkar Strandir, fundargerð frá 24.ágúst 2023 – Til afgreiðslu
- Sorpsamlag Strandasýslu fundargerð frá 4. október 2023 – Til kynningar
- Forstöðumannaskýrslur – Til kynningar
- Vinnuskýrsla sveitarstjóra í ágúst– Til kynningar og umræðu
- Erindi frá Fjórðungssambandi Vestfjarða v. sóknaráætlunar - Til kynningar
- Fjórðungssamband Vestfjarða og Vestfjarðarstofa fundargerðir 52 frá 29. mars, 53 frá 17. maí og 54 frá 28. júní ásamt ársfundi fulltrúaráðs Vestfjarðarstofu – Til kynningar
- Samband sveitarfélaga fundargerðir nr. 932 frá 8. september og 933 frá 18. sepember –Til kynningar
- Skógræktarfélag Íslands, áskorun varðandiskógarreiti og græn svæði innan byggðar – Til kynningar
- Hafnarsamband Íslands fundargerð nr. 456 frá 19. september 2023 - Til kynningar
Gert er ráð fyrir að eftirtaldir sveitarstjórnarmenn sitji fundinn:
Þorgeir Pálsson
Jón Sigmundsson
Sigríður Guðbjörg Jónsdóttir
Matthías Sævar Lýðsson
Hlíf Hrólfsdóttir
Strandabyggð 6. október 2023
Þorgeir Pálsson oddviti