Hamingjuhlauparar í startholunum
| 03. júlí 2009
Hér eru til gamans smá upplýsingar um þá sem ætla að hlaupa með Stefáni,
Arnfríður Kjartansdóttir
Sálfræðingur á Akureyri og vanur maraþonhlaupari. Hefur nánar tiltekið lokið 5 maraþonhlaupum, innan lands og utan, auk fjölmargra styttri götuhlaupa og utanvegahlaupa. Næsta stóra verkefni hjá henni er Laugavegshlaupið 18. júlí nk.
Birkir Stefánsson
Bóndi í Tröllatungu og einn af bestu skíðagöngumönnum Íslands mörg síðustu ár. Hefur tvisvar tekið þátt í Vasagöngunni og unnið fjölmarga sigra á ferlinum. Íþróttamaður Strandabyggðar 2009.
Guðmann Elísson
Smiður í Reykjavík og einn besti maraþonhlaupari Íslandssögunnar. Hefur hlaupið 11 maraþon um dagana, og er í 18. sæti á listanum yfir bestu maraþonhlaupara landsins frá upphafi. (Á þeim lista eru nú hvorki meira né minna en 1.290 manns). Guðmann hefur hlaupið Laugaveginn tvisvar og náð þar 4. besta tíma Íslendings frá upphafi; 4:54:08 klst.
Ingimundur Grétarsson
Fyrrverandi forstöðumaður skrifstofu Fasteignamats ríkisins í Borgarnesi. Hefur hlaupið 4 maraþonhlaup og tekið þátt í fjölmörgum götuhlaupum og utanvegahlaupum. Handhafi Maraþonbikars UMSB tvö síðustu ár. Verður með í maraþonhlaupinu á Landsmóti UMFÍ á næstu helgi.
Stefán Gíslason
Þorkell Stefánsson
Fæddur og uppalinn á Hólmavík. Hefur tekið þátt í þó nokkrum götuhlaupum síðustu 14 ár og náð töluvert betri árangri í hálfu maraþoni en faðir hans. Æfir nú spretthlaup með Frjálsíþróttadeild ÍR.

Hef hlaupið 4 maraþon og Laugaveginn einu sinni, tekið þátt í allmörgum götuhlaupum síðasta aldarfjórðung og þótti efnilegur millivegalengdahlaupari á ofanverðri síðustu öld. Fæst nú aðallega við fjallvegahlaup. Verð með í maraþonhlaupinu á Landsmóti UMFÍ á næstu helgi.