Kassabílasmiðja
Salbjörg Engilbertsdóttir | 15. júní 2013
Eftir nokkura ára hlé verður að nýju boðið upp á kassabílasmiðju í vikunni fyrir Hamingjudaga. Umsjónarmenn að þessu sinni eru Valli og Hlynur og verður smiðjan staðsett að Kópnesbraut 7 milli kl. 15 og 18 frá þriðjudegi 25. júní - fimmtudagsins 27. júní.
Þangað mega tilvonandi rallarar mæta með efni í nýjan bíl eða gamla bíla sem þurfa viðgerðar við og fá aðstoð. Ekki er reiknað með að smiðjan skaffi spýtur eða hjól en ef einhver á hjól eða annað efni sem hentar í kassabílagerð má endilega koma því til smiðjustjóra.