Leikhópurinn Lotta á Hamingjudögum
| 15. júní 2021
Pínulitla gula hænan - Söngvasyrpa
Leikhópurinn Lotta kemur í heimsókn til okkar á Hamingjudögum , 26. júní kl 11, með ævintýralegt skemmtiatriði fyrir alla fjölskylduna. Sýningin er í boði Strandabyggðar og geta áhorfendur því notið sér að kostnaðarlausu.
Það verður aðeins annar bragur á Lottu í sumar, sökum Covid gátu þau ekki búið til glænýjan íslenskan söngleik í fullri lengd líkt og vanalega, þau hafa þó ekki setið auðum höndum og koma nú til okkar með frábæra söngvasyrpu stútfulla af sprelli og fjöri fyrir allan aldur.
Í sumar ferðast Leikhópurinn Lotta um landið með skemmtilegt atriði unnið uppúr Litlu gulu hænunni sem þau sýndu árið 2015. Fjórir þekktir Lottu leikarar mæta á svæðið með frábært 25 mínútna skemmtiatriði prýtt fallegum boðskap, frábærum húmor að hætti Lottu og góðum lögum. Sjáumst vonandi sem flest á Pínulitlu gulu hænunni.
Sýningin fer fram á túninu við hlið Braggans laugardaginn 26. júní kl 11