Stórdansleikur með hljómsveitinni Á móti sól
Salbjörg Engilbertsdóttir | 24. júní 2013
Hin frábæra hljómsveit Á móti sól mun spila á Hamingjuballinu laugardagskvöldið 29. júní.
Magni og félagar munu væntanlega mæta eiturhressir á svæðið með pottþétt prógramm sem enginn ætti að verða svikinn af, enda um að ræða eitt allra vinsælasta og þéttasta ballband á Íslandi mörg undanfarin ár. Það er því óhætt að vera miklu meira en spenntur fyrir Hamingjuballinu 2013. Þeir munu líka taka nokkur lög á Hamingjutónum á laugardagskvöldinu.
Athugið að átján ára aldurstakmark verður á dansleikinn.