Sýning Rutar Bjarnadóttir í Hnyðju
| 21. júní 2021
Ný sýning Rutar Bjarnadóttir verður opnuð í Hnyðju í tilefni Haminjgudaga
Rut Bjarnadottir er fædd og uppalin á Hólmavík. Hún býr og starfar í Malmö, Svíþjóð.
Rut vinnur með mismunandi tækni, en alltaf út frá áferð og yfirborði.
Rut útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands, textíldeild árið 1987.
Þetta er fyrsta einkasýning Rutar á Íslandi og Hólmavík varð fyrir valinu.
Einkasýningar í úrvali: Íslenska Menningarhúsið (Jónshús), Kaupmannahöfn (DK), Sjöbo Konsthall (SE), Galleri Orås (SE), Galleri Vollsjö o Café (SE). Samsýningar í úrvali: Malmö Open Studios, ADDO, Malmö (SE), Landsbankinn, Reykjavík (IS), Lista- og arkitektúrháskólinn, Helsinki (FI). Skånes konsförening, Höstsalongen, Malmö (SE).Nánari upplýsingar um Rut og verk hennar er að finna á heimasíðu hennar rut.se
Sýningin opnar við setningu hátíðarinnar föstudaginn 25. júní kl. 17:00