Þjófstart
| 28. júní 2018
Í dag ætla nokkur félög að þjófstarta Hamingjudögum.
Í dag kl.13:00 var Náttúrubarnaskólinn með námskeið með hamingjuþema. Þar var hamingjunni breitt út, bruggað hamingjuseiði og sent flöskuskeyti.
Á eftir kl.18:00 verður HSS með fótboltamót á Grundum. Allir krakkar velkomnir að taka þátt og hvattir til að mæta.
Tilvalið er svo að enda kvöldið á tónleikum í Steinshúsi kl.20. Það verða sagðar sögur og spiluð tónlist við hæfi. Rúnar Þór, Tryggvi Hübner og Örn Jónsson koma fram.