Vinnustofusýning hjá Einari Hákonarsyni
Einn af stórviðburðum Hamingjudaga er vinnustofusýning Einars Hákonarsonar að Lækjartúni 23 en hún verður opin
laugardaginn 29. og sunnudaginn 30. júní milli kl. 14:00 og 18:00.
Einar Hákonarson (f.1945) er einn fremstu listmálara þjóðarinnar. Á fimmtíu ára ferli hefur hann málað fígúratíf og expressionsík málverk með manneskjuna í fyrirrúmi.
Á sýningunni eru sýnd nýleg olíumálverk þar sem kraftmiklir litir kallast á við agaða myndbyggingu þrautreynds listamanns.
Einar hefur verið búsettur á Hólmavík á Ströndum síðustu ár hann er einn aðal portrettmálara þjóðarinnar og hefur hann málað ýmsa stjórnmálamenn, listamenn og skáld. Verk hans prýða ýmsar opinberar byggingar, t.a.m. skóla, bankastofnanir, kirkjur og sali Alþingis.
Á ferli sínum hefur hann haldið yfir 40 einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga víða um lönd.
Einar er handhafi Menningarverðlauna Strandabyggðar árið 2012 og er höfundur að vatnslistaverkinu Seiður sem er staðsett nálægt höfninni.