Atvinna - störf á lausu hjá KSH
| 21. júlí 2017
Starfsmaður óskast í í veitingarskála og verslun á Hólmavík
- Um er að ræða framtíðarstarf í vaktavinnu
- Starfið er fjölbreytt í líflegu starfsumhverfi þar sem létt lund, þjónustulipurð, heiðarleiki, snyrtimennska og dugnaður skiptir máli.
Hæfniskröfur - Reynsla af hliðstæðu starfi er æskileg
- Metnaður fyrir starfi, sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð skilyrði
- Góð þjónustulund og færni í samskiptum
Verkefni - Afgreiðsla
- Vörumóttaka og framsetning í verslun
- Bakstur og framreiðsla
- Samskipti við stjórnendur og starfsfólk verslunar
- Önnur tilfallandi störf
Umsókn - Umsækjandi þarf að geta hafið störf um miðjan ágúst.
- Umsóknarfrestur er til og með 25. júlí.
- Umsækjendur eru beðnir um að fylla út umsókn afhenda á skrifstofu KSH eða senda í tölvupósti til viktoria@ksholm.is
Sjá nánar á vef KSH