A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Laust starf á leikskólanum Lækjarbrekku

Salbjörg Engilbertsdóttir | 21. mars 2025

Staða leikskólakennara, almennt starf á deild. Starfshlutfall er 100% og vinnutíminn frá 8:00-16:00. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.


Leikskólinn Lækjarbrekka 
tilheyrir sameinuðum leik-, grunn- og tónskóla í Strandabyggð og starfar samkvæmt lögum og reglugerðum um grunnskóla og leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá grunnskóla og stefnu skólans.

Uppeldisstefnan er jákvæður agi, skólinn er grænfánaskóli og unnið er að innleiðingu stefnu um heilsueflandi skóla.


Menntunar og hæfniskröfur:

• Kennaramenntun, leyfisbréf og hæfni til kennslu í viðeigandi skólagerð

• Góð íslenskukunnátta

• Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum

• Jákvæðni, frumkvæði og góður samstarfsvilji

• Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum

• Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum

• Reglusemi og samviskusemi

• Hreint sakavottorð


Laun 
eru samkvæmt samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.

Ef enginn kennaramenntaður sækir um verður staðan boðin ófaglærðum en öll menntun er kostur


Umsóknarfrestur er til  31. mars 2025. Æskilegt að störf geti hafist sem fyrst


Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir skólastjóri gefur upplýsingar um starfið og tekur á móti umsóknum ásamt ferilskrá, afriti leyfisbréfa og upplýsingum um meðmælendur netfang: skolastjori@strandabyggd.is

Laus staða við ræstingar

Salbjörg Engilbertsdóttir | 20. mars 2025
Laus er staða við ræstingar í grunnskólanum, vinnutími er frá 14:00-16:30 en hægt er að semja um að vinna starfið seinna að deginum. Um er að ræða þvott, skúringar og almenn þrif á skólahúsnæði eftir að skóla lýkur.
Um 35% starf er að ræða fram í byrjun júní.

Greitt er skv. kjarasamningum Sambands sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags

Æskilegt er að starfsmaður geti byrjað 1. apríl 2025

Upplýsingar um starfið gefur skólastjóri Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir skolastjori@strandabyggd.is, eða skrifstofustjóri Salbjörg Engilbertsdóttir á strandabyggd@strandabyggd.is umsóknum skal skilað á strandabyggd@strandabyggd.is og er frestur til og með 27. mars n.k.

English

Cleaning position is avalable at the elementary school, working hours are from 14:00-16:30, but it is possible to  work the job later in the day. The job involves washing and general cleaning of the school premises after school ends.

This is a 35% job until the beginning of June.


Payment is according to the collective agreements of the Association of Local Authorities and the relevant union


Job is avalable from April 1, 2025

Information  provided by the school principal Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir skolastjori@strandabyggd.is, or office manager Salbjörg Engilbertsdóttir at strandabyggd@strandabyggd.is

Applications should be submitted to strandabyggd@strandabyggd.is and the deadline is March 27, 2025.

Laus staða þjónustufulltrúa-UPPFÆRT

Salbjörg Engilbertsdóttir | 12. mars 2025

Laus er staða þjónustufulltrúa á skrifstofu Strandabyggðar. Lagt er upp með starfi á tímanum 10-14  með möguleika á tilfærslu í tíma. 

Helstu verkefni eru:

  • Almenn afgreiðsla, símsvörun og upplýsingagjöf til viðskiptavina
  • Þjónusta við íbúa og viðskiptavini 
  • Innheimta
  • Bókhald og almenn skrifstofustörf
  • Skjalavarsla og umsýsla umsókna
  • Önnur störf sem tengjast stjórnsýslu og starfsemi sveitarfélagsins

Öll menntun er kostur og tekið verður tillit til reynslu og þekkingar sem nýtist við störf fyrir sveitarfélagið.


Gerð er krafa um góða þjónustulund, hæfni í samskiptum, reglusemi, nákvæmni, ritfærni og kunnáttu á office kerfin. Þekking á DK kerfinu og One system málavörslukerfinu er kostur sem og vinna við vefumsjónarkerfi. 

Æskilegt er að störf hefjist sem fyrst. Laun skv. samningi Sambands sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til miðnættis 31. mars 2025 og þarf starfsferilskrá að fylgja með umsókninni. Umsóknum skal skilað á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is Einnig má skila inn umsóknum á skrifstofu sveitarfélagisns að Hafnarbraut 25.
Allar nánari upplýsingar veitir skrifstofustjóri, Salbjörg Engilbertsdóttir í síma 451-3510 á opnunartíma eða á netfangið salbjorg@strandabyggd.is

english:

A position is available for a service representative at the Strandabyggð municipalitioffice. The position is scheduled from 10am to 2pm, with the option to shift to a different time.


Main tasks are:

General service, telephone products and information provision for purchase. Services to residents. 
Accounting and general office work. Documentation and application processing. Other work as part of the company's administration and management company

Education and experience is needed and knowledge that is useful for working for municipalities will be taken into account.

Good customer service skills, communication skills, regularity, accuracy, writing skills and knowledge of office systems are required. Knowledge of the DK system and the One system case management system is an advantage, as well as work with a web management system.


It is desirable that work begins as soon as possible. Salary according to the agreement of the Association of Municipalities and the union.


The application deadline is midnight March 31th 2025 and a resume must be included with the application. Applications should be submitted to the email address strandabyggd@strandabyggd.is Applications can also be submitted to the municipality's office at Hafnarbraut 25.

For further information, please contact the office manager, Salbjörg Engilbertsdóttir, at 451-3510 during opening hours or at salbjorg@strandabyggd.is

Sumarstörf 2025

Salbjörg Engilbertsdóttir | 12. mars 2025

Strandabyggð auglýsir eftir umsækjendum fyrir afleysingar- og sumarstörf, athugið að sum störfin gætu hafist fljótlega. Umsóknarfrestur er til 31.3.2025

Íþróttamiðstöð, tjaldsvæði, vinnuskóli 
-Íþróttamiðstöð og tjaldsvæði. Sumarstarfsmenn í sundlaug og tjaldsvæði. Starfsmenn þurfa að ná kröfum sundlaugarvarða og hafa náð 18 ára aldri. Nánari upplýsingar um starfið hér
-Íþróttamiðstöð og tjaldsvæði. Sumarstarfsmenn við afgreiðslu og þrif. Starfmenn þurfa að hafa náð 16 ára aldri
-Vinnuskóli og umhverfisfegrun – Umsjón með vinnuskóla, stærsti hluti starfs í júní, nánari upplýsingar hér

Eignasvið, áhaldahús og Sorpsamlag
-Áhaldahús. Um er að ræða almenn verkamannastörf í Áhaldahúsi við slátt og viðhald eigna. Nánari upplýsingar hér
-Sorpsamlag. Um er að ræða vinnu á sorpbíl og gámabíl meiraprófs krafist ásamt lyftararéttindum (vinnuvélaréttindi)


Velferðarþjónusta
-Umsjón starfsmanna í atvinnu með stuðningi. Um er að ræða 1 stöðugildi hjá Félagsþjónustu frá byrjun júní fram í miðjan ágúst. 
-Liðveisla barna, hlutastarf í félagsþjónustu
Frekari upplýsingar veitir Hlíf Hrólfsdóttir Félagsmálastjóri á netfangið felagsmalastjori@strandabyggd.is

Fræðslustofnanir
-Leikskóli. Um er að ræða afleysingarstörf í leikskóla. Leikskóli er lokaður 25.júní -6. ágúst 


ATH! Umsóknir í Vinnuskóla Strandabyggðar verða birtar í byrjun maí og fyrirkomulagið auglýst þá.Tekið verður á móti umsóknum frá börnum sem eru búsett í Strandabyggð og/eða eiga a.m.k annað foreldri sitt með lögheimili í sveitarfélaginu.

Umsóknarfrestur er til miðnættis 31. mars 2025 og sótt er um  hér í gegnum microsoft forms eða á eyðublöðum sem finna má hér til að senda í tölvupósti (strandabyggd@strandabyggd.is) eða skila inn á skrifstofuna hjá okkur. 


English version

Strandabyggð Municipality, announces the following openings for summer jobs: 

Sports-center, camping site and work school 
• We seek summer assistance at the sport-center and camping site. All applicants must be 18 of age and have passed the Swimming pool guards tests

• Manager of work school summer projects and environmental projects. Will mostly take place in June.


Municipality Property Center
- Strandabyggð is offering a position as a general worker at the Municipality Property Center
- Tasks will include, but are not limited to; general work, gardening, property repair, catch registration at the harbor (special licenses required) and garbage and waist collection, sorting and packing (extended driving licenses and others required).


Social services
- Management of staff in the program work with assistance. One position is available from june to mid August. 
- Part time assistance for children with special needs 
For more information contact Hlíf Hrólfsdóttir, head of social services felagsmalastjori@strandabyggd.is 


Educational Institutions
- Kindergarten: Temporary position from May – August. The kindergarten is closed from June 25th to August 6st

 

Applications are accepted until 31.mars 2025 apply here trough microsoft forms or by filling out form here and submitting by email (strandabyggd@strandabyggd.is) or at our office.

Laust starf í frístund og Ozon

Salbjörg Engilbertsdóttir | 20. janúar 2025
Lausar hlutastaða leiðbeinanda við Ozon og frístundaþjónustu Strandabyggðar. 
Starfstími samræmist skóladagatali og er eftir hádegi alla daga og á fimmtudögum fram á kvöld v. opnunar Ozon. 


Helstu verkefni og ábyrgð

* Leiðbeina börnum í leik og starfi

* Samráð og samvinna við börn og starfsfólk

* Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk skóla og aðra sem koma að starfinu


Hæfniskröfur

* Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi

* Áhugi á að vinna með börnum

* Frumkvæði og sjálfstæði

* Færni í samskiptum


Farið er fram á hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar veitir Salbjörg skrifstofustjóri á netfanginu salbjorg@strandabyggð eða i síma 451-3510
Umsóknarfrestur er til og með 27. janúar. Umsóknir sendist á strandabyggd@strandabyggd.is

Laust starf á leikskólanum Lækjarbrekku

Salbjörg Engilbertsdóttir | 04. desember 2024

Staða leikskólakennara, almennt starf á deild. Starfshlutfall er 100% og vinnutíminn frá 8:00-16:00. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.


Leikskólinn Lækjarbrekka 
tilheyrir sameinuðum leik-, grunn- og tónskóla í Strandabyggð og starfar samkvæmt lögum og reglugerðum um grunnskóla og leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá grunnskóla og stefnu skólans.

Uppeldisstefnan er jákvæður agi, skólinn er grænfánaskóli og unnið er að innleiðingu stefnu um heilsueflandi skóla.


Menntunar og hæfniskröfur:

• Kennaramenntun, leyfisbréf og hæfni til kennslu í viðeigandi skólagerð

• Góð íslenskukunnátta

• Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum

• Jákvæðni, frumkvæði og góður samstarfsvilji

• Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum

• Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum

• Reglusemi og samviskusemi

• Hreint sakavottorð


Laun 
eru samkvæmt samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.

Ef enginn kennaramenntaður sækir um verður staðan boðin ófaglærðum en öll menntun er kostur


Umsóknarfrestur er til miðnættis 11. desember 2024. Æskilegt að störf geti hafist sem fyrst


Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir skólastjóri gefur upplýsingar um starfið og tekur á móti umsóknum ásamt ferilskrá, afriti leyfisbréfa og upplýsingum um meðmælendur netfang: skolastjori@strandabyggd.is

Laust starf á skrifstofu Strandabyggðar

Salbjörg Engilbertsdóttir | 22. október 2024


Laus er staða þjónustufulltrúa á skrifstofu Strandabyggðar. Um er að ræða stöðu frá 10-14 alla virka daga

Helstu verkefni eru:

  • Almenn afgreiðsla, símsvörun og upplýsingagjöf til viðskiptavina
  • Þjónusta við íbúa og viðskiptavini 
  • Innheimta
  • Bókhald og almenn skrifstofustörf
  • Skjalavarsla og umsýsla umsókna
  • Önnur störf sem tengjast stjórnsýslu og starfsemi sveitarfélagsins

Öll frekari menntun er kostur og tekið verður tillit til reynslu og þekkingar sem nýtist við störf fyrir sveitarfélagið.


Gerð er krafa um góða þjónustulund, hæfni í samskiptum, reglusemi, nákvæmni, ritfærni og kunnáttu á office kerfin. Þekking á DK kerfinu og One system málavörslukerfinu er kostur sem og vinna við vefumsjónarkerfi. 

Æskilegt er að störf hefjist sem fyrst. Laun skv. samningi Sambands sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til miðnættis 29. oktber og þarf starfsferilskrá að fylgja með umsókninni. Umsóknum skal skilað á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is Einnig má skila inn umsóknum á skrifstofu sveitarfélagisns að Hafnarbraut 25.
Allar nánari upplýsingar veitir skrifstofustjóri, Salbjörg Engilbertsdóttir í síma 451-3510 á opnunartíma eða á netfangið salbjorg@strandabyggd.is

Laus tvö störf við grunnskólann á Hólmavík

Salbjörg Engilbertsdóttir | 21. ágúst 2024

Tvö störf eru laus við grunnskólann á Hólmavík. 

Laus er staða skólaliða við grunnskólann. Starfsmaður starfar við gæslu í skóla s.s. á göngum skólans, í mötneyti og frímínútum og er nemendum innan handar og leiðbeinir eftir þörfum. Starfsmaður sinnir einnig léttum þrifum.
Um 37,5% starf er að ræða í dreifðu starfi á 12 mánuði en 41% v. starfs í 9,5 mánuði. Leitað er eftir starfsfólki sem hefur ánægju af að vinna með börnum,sýnir færni í samskiptum við börn og fullorðna og tekur þátt í því uppeldisstarfi sem á sér stað innan skólans. Farið er fram á hreint sakavottorð

Laus er staða við ræstingar í grunnskólanum, vinnutími er frá 14:00-16:30 en hægt er að semja um að vinna starfið seinna að deginum. Um er að ræða þvott, skúringar og almenn þrif á skólahúsnæði eftir að skóla lýkur.
Um 33% starf er að ræða í dreifðu starfi á 12 mánuðum en 35% í 9,5 mánuði.

Greitt er skv. kjarasamningum Sambands sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélög

Æskilegt er að starfsmenn geti byrjað sem fyrst.

Upplýsingar um starfið gefur Salbjörg skrifstofustjóri salbjorg@strandabyggd.is, umsóknum skal skilað á strandabyggd@strandabyggd.is og er frestur til og með 28. ágúst n.k. 



Laus störf í Ozon og frístundaþjónustu

Salbjörg Engilbertsdóttir | 19. ágúst 2024
Lausar eru tvær hlutastöður frístundaleiðbeinanda við Ozon og frístundaþjónustu Strandabyggðar. 
Starfstími samræmist skóladagatali og er eftir hádegi alla daga og á fimmtudögum fram á kvöld v. opnunar Ozon. 


Helstu verkefni og ábyrgð

* Skipulagning á frístundastarfi.

* Leiðbeina börnum í leik og starfi.

* Samráð og samvinna við börn og starfsfólk.

* Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk skóla og aðra sem koma að starfinu.


Hæfniskröfur

* Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.

* Áhugi á að vinna með börnum.

* Frumkvæði og sjálfstæði.

* Færni í samskiptum.


Farið er fram á hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar veitir Salbjörg skrifstofustjóri á netfanginu salbjorg@strandabyggð eða i síma 451-3510
Umsóknarfrestur er til og með 26. ágúst. Umsóknir sendist á strandabyggd@strandabyggd.is

Starfsmaður óskast í félagslega liðveislu á Drangsnesi

Soffía Guðrún Guðmundsdóttir | 03. júní 2024

 Starfsmaður óskast í félagslega liðveislu á Drangsnesi

 

Starfsmaður óskast í 50% starf við félagslega liðveislu á Drangsnesi í júlí og ágúst, með möguleika á áframhaldandi starfi. Markmið liðveislu er að rjúfa félagslega einangrun einstaklingsins og efla sjálfstæði í félagslegum samskiptum.

Laun eru samkvæmt taxta Verk-Vest.

Umsóknir sendist Soffíu Guðmundsdóttur, félagsmálastjóra, Hafnarbraut 25, 510 Hólmavík.

Upplýsingar eru veittar í síma 451-3510 og fyrirspurnir og umsóknir má einnig senda á felagsmalastjori@strandabyggd.is

Fyrri síða
1
234567111213Næsta síða
Síða 1 af 13
Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón