Aðalfundur foreldrafélags leikskólans
Leikskólinn Lækjarbrekka | 20. janúar 2014
Aðalfundur foreldrafélags
Leikskólans Lækjarbrekku
Mánudaginn 3. febrúar kl 20.00 verður haldinn aðalfundur foreldrafélags Leikskólans Lækjarbrekku. Mun fundurinn fara fram á Leikskólanum Lækjarbrekku.
Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf:
1. Skýrsla stjórnar
2. Ársreikningur kynntur
3. Kosning nýrrar stjórnar
4. Önnur mál
Vonumst til þess að sem flestir sjái sér fært að mæta. Léttar veitingar verða í boði.
Stjórn foreldrafélags Leikskólans Lækjarbrekku;
Hrafnhildur Þorsteins, Jóhanna Hreins og Jóhanna Guðbrands.