Dagur íslenskrar náttúru
Leikskólinn Lækjarbrekka | 19. september 2014
Í tilefni af degi íslenskrar náttúru þann 16. september fór allur hópurinn í Tröllakoti í vettvangsferð.
Í ferðinni var margt skoðað og gleymdu börnin sér við að rannsaka það sem finna má í náttúrunni. Einnig vakti það mikla gleði þegar uppgötvuðust hænur í næsta nágrenni.
Þegar heim var komið fengu börnin sér ávaxtabita úti.