Leikskólinn Lækjarbrekka-viðbragðsáætlun.
Til foreldra leikskólabarna
Samkomubann er í gildi á Íslandi frá 16. mars til og með 13. apríl 2020. Leikskólar mega halda uppi leikskólastarfi að uppfylltum þeim skilyrðum að börn séu í fámennum hópum og aðskilin eins og kostur er. Eins þarf að þrífa og sótthreinsa leikskólabygginguna eftir hvern dag. Allar aðgerðir miða að því að hægja á útbreiðslu Covid - 19
Sérstaklega er óskað eftir því að foreldrar sem eru í þeirri aðstöðu að geta haft börn sín heima geri það. Vinsamlega hafið samband til að láta vita í netfang skolastjori@strandabyggd.is
-Athugið að leikskólinn er opnaður eins og venjulega.Til þess að tími gefist til þrifa og sótthreinsunar lýkur starfinu klukkan 15:30 og foreldrar eru beðnir að sækja börnin þá.
- Mælst er til þess að börn séu heima ef þau eru með hita eða einkenni sem svipar til einkenna kórónaveirunnar COVID-19. Helstu einkenni eru hiti, hósti, þreyta, vöðva-, bein-, eða höfuðverkur.
Þessar ráðstafanir gerum við á Lækjarbrekku:
- Enginn samgangur er á milli barna í Dvergakoti og Tröllakoti. Lokað verður á milli deilda.
- Enginn samgangur verður á milli starfsfólks á milli deilda, kaffi á sitt hvorum stað og tíma.
- Álma starfsfólks er lokuð af. Skrifstofa aðstoðarskólastjóra er notuð fyrir talþjálfun.
- Farið er í útiveru á sitt hvorum tímanum. Dvergakot 9:00-10:00 og 13:30-14:30, Tröllakot 10:00-11:00, 15:00-16:00.
- Börn í Dvergakoti nýta bókasafn, kubbakot og listakot.
- Efni sem nýta þarf í Tröllakoti er fært inn á deild úr bókasafni, kubbakoti og listakoti.
- Þjónar taka við matarvögnum í fataklefa sinnar deildar.
- Stoðþjónusta og þjónusta talmeinafræðings fer fram á skrifstofu aðstoðarleikskólastjóra.
- Starfsfólk tekur á móti börnum við komu við útidyr og þeim skilað við útidyr á sinni deild. Hafi fólk tök á að hringja á undan sér þegar börn eru sótt mun starfsfólk búa þau til heimferðar
- Gestabann er í gildi. Leikskólinn er einungis opinn starfsfólki, börnum og foreldrum þeirra.
- Þurfi starfsfólk nauðsynlega að fara á milli deilda/svæða skal það þvo sér um hendur með sápu og spritta áður en það er gert. Þetta takmarkast við ferðir aðstoðarleikskólastjóra og starfsmanns í eldhúsi.
Ráðstafanir er varða þrif og sótthreinsun.
- Starfsfólk deilda sótthreinsar í lok dags öll borð, stóla, þurrkskápa, skiptiaðstöðu og leikföng eins og unnt er.
- Dýnur, teppi og koddar verð merkt hverju barni og það geymt aðskilið.
- Starfsmaður eldhúss sótthreinsar í lok dags borðfleti á kaffistofu auk tölvu. Einnig snertifleti í eldhúsi og matarvagna.
- Ekki fara aðrir inn í eldhús en starfsmaður í eldhúsi.
- Starfsmaður í skúringum sótthreinsar í lok dags alla hurðahúna og ljósrofa. Salerni eru sérstaklega sótthreinsuð.
- Við þrif og sótthreinsun skal nota einnota hanska.
Góðar leiðbeiningar eru á
Höldum ró okkar og tökum á þessu saman. Hikið ekki við að hafa samband ef eitthvað er. Sendið endilega ábendingar og/eða spurningar á netfangið: skolastjori@strandabyggd.is