Símalaus sunnudagur
Næstkomandi sunnudag 30. október nk. standa Barnaheill – Save the Children á Íslandi fyrir símalausum sunnudegi í fjórða sinn.
Yfirskrift Símalauss Sunnudags er ,,Upplifum ævintýrin saman” og er markmiðið að vekja foreldra og annað fullorðið fólk til umhugsunar um áhrif snjalltækja á samveru og nánd innan fjölskyldna.
Snjallsímar og önnur snjalltæki eru skemmtileg og gagnleg tæki sem hafa umbylt því hvernig við eigum í samskiptum, nálgumst upplýsingar og verjum tíma okkar. Í mörgum tilvikum eru áhrif tækninnar jákvæð og sniðug en einnig hefur verið bent á skuggahliðar hennar. Óhófleg notkun á snjalltækjum getur meðal annars haft áhrif á samskipti innan fjölskyldunnar – samskiptin og nándin minnka því það er eitthvað sem stelur athyglinni.
Hægt er að skrá sig til leiks á www.simalaus.is og taka áskorun Barnaheilla. Allir þátttakendur eiga möguleika á að vinna fjölbreytta og fjölskylduvæna útdráttarvinninga og fá auk þess nokkur góð ráð send í tölvupósti laugardaginn 29. október. Tökum þátt.