Umhverfis- og skipulagsnefnd - 5. nóvember 2015
Fundur var haldinn í Umhverfis- og skipulagsnefnd Strandabyggðar fimmtudaginn
5. nóvember 2015, kl. 17:00 á skrifstofu sveitarfélagsins.
Fundinn sátu: Jón Gísli Jónsson formaður, Hafdís Sturlaugsdóttir, Már Ólafsson, Jóhann Björn Arngrímsson og Gísli Gunnlaugsson byggingarfulltrúi sem ritaði fundargerð.
Á dagskrá fundarins var eftirfarandi:
- Stöðuleyfi fyrir gáma
Erindi frá Þorsteini Paul Newton þar sem hann fyrir hönd Hólmadrangs ehf. óskar eftir stöðuleyfi fyrir fjóra frystigáma á lóð fyrirtækisins. Gámarnir verða staðsettir þannig að sem minnst truflun verði af þeim, þar á meðal vegna hávaða.
Erindið samþykkt. - Dæluskúr Nauteyri
Umsókn frá Hraðfrystihúsinu – Gunnvör ehf. þar sem óskað er eftir leyfi til að byggja við dæluskúr fyrir heitt vatn sem þjónar fiskeldisstöð HG á Nauteyri, samkvæmt meðfylgjandi teikningu. Einnig er sótt um leyfi til að endurnýja skýli þriggja borhola við eldisstöðina.
Hafdís Sturlaugsdóttir tekur ekki þátt í afgreiðslu þessa erindis.
Erindið samþykkt.
- Gestsstaðir
Erindi frá Ragnheiði Jónsdóttir og Sólveigu Jónsdóttir þar sem óskað er eftir leyfi til að rífa fjósbyggingu sem stendur á jörðinni Gestsstaðir.
Erindið samþykkt.
- Sumarhúsalóð
Erindi frá Guðmundi Helga Jenssyni þar sem hann sækir um auða sumarhúsalóð í Skeljavík rétt sunnan Hólmavíkur.
Samþykkt að úthluta Guðmundi Helga lóð nr. 6 í Skeljavík. Hafi teikningar ekki borist byggingarfulltrúa innan sex mánaða frá úthlutun lóðarinnar fellur hún niður. Framkvæmdir við byggingu sumarhússins skulu hefjast innan 12 mánaða frá úthlutun lóðarinnar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd beinir því til sveitarstjórnar að haldið verði áfram með vinnu við deiliskipulag á reit F2, ofan þjóðvegar, fyrir sumarhús.
- Seiðaeldi Nauteyri
Í samræmi við 6. gr. laga nr. 106/2000 og 11. gr. reglugerðar nr. 1123/2005 um mat á umhverfisáhrifum óskar Skipulagsstofnun eftir að Strandabyggð gefi umsögn um hvort og á hvaða forsendum ofangreind framkvæmd skuli háð mati á umhverfisáhrifum að teknu tilliti til 2. viðauka í framangreindum lögum.
Hafdís Sturlaugsdóttir víkur af fundi við afgreiðslu þessa dagskrárliðar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að í gögnum meðfylgjandi tilkynningu um seiðaeldisstöð á Nauteyri, fyrir allt að 800 tonna ársframleiðslu á lax- og silungseldi, sé nægjanlega gerð grein fyrir framkvæmdinni, umhverfi hennar, mótvægisaðgerðum og vöktun. Nefndin telur því ekki að framkvæmdin skuli háð mati á umhverfisáhrifum. Framkvæmdin er að hluta háð byggingarleyfum samkvæmt mannvirkjalögum og framkvæmdaleyfum.
- Deiliskipulag Nauteyri
Erindi frá Teiknistofunni Eik ehf. þar sem óskað er eftir að deiliskipulags- og matslýsing, vegna fyrirhugaðs deiliskipulags fyrir hluta jarðarinnar Nauteyri, verði tekin til meðferðar skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Hafdís Sturlaugsdóttir víkur af fundi við afgreiðslu þessa dagskrárliðar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að deiliskipulags- og matslýsing, vegna fyrirhugaðs deiliskipulags fyrir hluta jarðarinnar Nauteyri, dagsett 29.október 2015, fari í lögbundna kynningu.
- Önnur mál
a) Ársfundur náttúrverndarnefnda og Umhverfisstofnunar
Fimmtudaginn 12. nóvember 2015 verður haldinn 18. ársfundur Umhverfisstofnunar og náttúruverndarnefnda sveitarfélaga.
Kynnt.
b) Ármúli I
Kynnt bréf Minjastofnunar vegna undirbúnings að friðlýsingu íbúðarhússins að Ármúla I
c) Auglýsingaskilti
Borist hefur bréf frá Umhverfisstofnun þar sem, að gefnu tilefni, er minnt á að auglýsingar meðfram vegum og annarsstaðar utan þéttbýlis eru óheimilar nema að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
Jón Gísli Jónsson
Hafdís Sturlaugsdóttir
Már Ólafsson
Jóhann Björn Arngrímsson
Gísli Gunnlaugsson