Fræðslunefndarfundur 5. ágúst 2021
Fundur var haldinn í fræðslunefnd fimmtudaginn 5. ágúst kl. 17.00 í Hnyðju. Eftirtaldir nefndarmenn mættu: Sigríður Guðbjörg Jónsdóttir og Guðfinna Lára Hávarðardóttir. Vignir Rúnar Vignisson og Sigurður Marínó Þorvaldsson boðuðu forföll en í stað þeirra mættu Guðjón H. Sigurgeirsson og Kristín Sigmundsdóttir. Fulltrúi skólans mætti kl. 17:00, en það var Hrafnhildur Þorsteinsdóttir staðgengill skólastjóra. Aðrir fulltrúar mættu ekki.
Dagskrá
- Mat á starfsáætlun leik- og grunnskóla 2020-2021.
Farið var yfir mat á áætlunum.
Rætt um að uppfæra þurfi skólahjúkrunarfræðing í grunnskóla í kjölfar starfsmannabreytinga.
Rætt um símenntun ófaglærðra starfsmanna skólanna og telur fræðslunefnd æskilegt að sameiginleg áætlun verði útbúin fyrir sameinaðan skóla.
Einnig var rætt um eineltisáætlun og eineltisteymið í grunnskólanum og hvernig leikskólinn styðst við það.
Fræðslunefnd leggur til að sameiginlegt eineltisteymi verði sett á laggirnar með fulltrúum beggja skóla.
2. Sýn og stefna
Sýn og stefna sameinaðs skóla þarf að leggja lokahönd á. Einkunnarorð og nafn á sameinuðum skóla voru tekin fyrir á skólaþingi í apríl 2021. Ný sýn og stefna verður kynnt nefndinni þegar hún er fullbúin.
3. Skóladagatal lokaútgáfa
Rætt um skóladagatal grunnskóla. Vetrarfrísdagar eru settir upp 4 yfir skólaárið, 2 fyrir áramót og 2 eftir áramót. Fræðslunefnd leggur til að fjöldi vetrarfrísdaga verði fækkað aftur niður í 2 og foreldrar hafðir með í ráðum við ákvörðun á fjölda þeirra t.d. með spurningakönnun fyrir skólaárið 2022-2023.
Fræðslunefnd bendir á að dans vantar inn á bæði skóladagatölin.
Fræðslunefnd samþykkir skóladagatal grunnskóla að öðru leyti.
Fræðslunefnd samþykkir skóladagatal leikskóla.
Fundargerð lesin yfir og fundi slitið 19.29.