12 mánaða skýrsla sveitarstjóra
| 28. ágúst 2011
Á starfsdögunum var farið yfir tillögu sveitarstjóra að breyttu skipuriti nefnda í sveitarfélaginu þar sem lagt er til að skipurit verði einfaldað með það að markmiði að efla skilvirkni, auka upplýsingaflæði, dreifa ábyrgð og ná betri árangri í rekstri og þjónustu sveitarfélagsins (sjá hér). Lagt er til að fækka nefndum úr 7 í 5 þar sem sveitarstjórnarfulltrúi leiði hvert svið. Sveitarstjórn ásamt fleira sveitarstjórnarfólk af J-lista og V-lista Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs skoðaði kosti og galla fyrirkomulagsins og velti upp fjölbreyttum möguleikum varðandi sviðin, fjölda þeirra og hvaða málefni ættu að fara undir hvert þeirra.
Einnig var lagt fram núverandi skipurit yfir stofnanir og starfssvið sveitarfélagsins og verksvið sveitarstjóra (sjá hér) og skoðað hvort unnt er að gera breytingar til að ná fram fyrrgreindum markmiðum um að efla skilvirkni, dreifa ábyrgð og ná betri árangri í rekstri og þjónustu. Áframhaldandi umræða og hugmyndavinna er fyrirhuguð varðandi þessa þætti og er starfsfólk sveitarfélagsins og aðrir íbúar hvattir til að koma með gagnlegar ábendingar til sveitarstjórnarfólks og sveitarstjóra Strandabyggðar.
Þá var farið yfir 10 ára framtíðarsýn og framkvæmdaáætlun til næstu þriggja ára sett saman sem notuð verður til grundvallar í fjárhagsáætlunarvinnu 2012 og þriggja ára áætlun 2012-2015. Sveitarstjórnarfólk af J-lista og V-lista tók þátt í starfsdögunum.