7. bekkur í skólabúðum í Reykjaskóla
| 21. febrúar 2011
Nemendur í 7. bekk í Grunnskólanum á Hólmavík lögðu af stað í morgun í skólabúðir í Reykjaskóla í Hrútafirði. Nemendurnir munu dvelja út vikuna í skólabúðunum þar sem þeirra bíður skemmtileg ævintýradagskrá. Sund, íþróttir, stöðvaleikir, náttúrufræði, Byggðasafnið á Reykjum og kvöldvökur er meðal þess sem ungmennin fá að kynnast næstu daga.
Skólabúðirnar i Reykjaskóla hafa notið mikilla vinsælda undanfarin ár en þangað koma 7. bekkingar víðsvegar að af landinu. Nemendur Grunnskólans á Hólmavík hafa safnað fyrir skólabúðunum með kökubasar, félagsvist og flöskusöfnun svo eitthvað sé nefnt. Sveitarfélagið Strandabyggð óskar þeim ánægjulegrar ferðar.