Aðalskipulag Strandabyggðar 2010-2022
Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkti á fundi sínum 2. júní 2010 að auglýsa tillögu að aðalskipulagi Strandabyggðar 2010-2022.
Samkvæmt 18.gr. skipulags- og byggingalaga nr. 73/1997 er hér með auglýst eftir athugasemdum við aðalskipulagstillöguna. Skipulagsuppdrættir, greinagerð, forsendur og umhverfisskýrsla liggja frammi á skrifstofu Strandabyggðar og hjá Skipulagsstofnun Laugavegi 166, Reykjavík frá 15. júní til 13. júlí 2010. Ennfremur verða gögnin aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins www.strandabyggd.is. Athugasemdum skal skila skriflega á skrifstofu Strandabyggðar að Hafnarbraut 19 eða á netfangið holmavik@holmavik.is merkt "aðalskipulag" fyrir 28. júlí 2010. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests teljast samþykkir tillögunni.
Hólmavík, 11. júní 2010
Sveitarstjóri Strandabyggðar.