A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Aðalskipulag Strandabyggðar 2021-2033 – Vinnslutillaga

Heiðrún Harðardóttir | 30. maí 2024

Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkti á fundi sínum 14. maí 2024 að auglýsa vinnslutillögu að Aðalskipulagi Strandabyggðar 2021-2033.

Um er að ræða heildarendurskoðun á fyrsta Aðalskipulagi Strandabyggðar 2010 - 2022. Gildistími þess er senn liðinn og endurskoðun því tímabær.  Síðan að gildandi skipulag var samþykkt hafa ýmsar forsendur tekið breytingum s.s. atvinnulíf og fólksfjöldi og ýmis ný tækifæri og áskoranir litið dagsins ljós.

Í aðalskipulagi ber sveitarfélögum að setja fram stefnu og ákvarðanir sveitarstjórnar um framtíðarnotkun lands og fyrirkomulag byggðar, um landnotkun, byggðaþróun og mynstur, samgöngu‐ og þjónustukerfi og atvinnu‐ og umhverfismál.

Aðalskipulag skal haft til grundvallar við gerð annarra áætlana er snerta ráðstöfun lands á einn eða annan hátt og aðrar skipulagsáætlanir innan sveitarfélagsins skulu vera í samræmi við aðalskipulag.

Vinnslutillagan – greinargerð ásamt aðalskipulagsuppdráttum - er aðgengileg í Skipulagsgátt á slóðinni https://skipulagsgatt.is/issues/2024/675

Sveitarstjórn Strandabyggðar hvetur íbúa, hagsmunaðila og alla þá sem hafa athugasemdir og ábendingar um vinnslutillöguna að skila þeim skriflega fyrir 30. júní 2024 í gengum skipulagsgáttina. 

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón