Álagning fasteignagjalda
Álagning fasteignagjalda í Strandabyggð 2018
Álagning fasteignagjalda byggir á gildandi fasteignamati allra fasteigna eins og það er í janúar ár hvert. Álagning fasteignagjalda fer fram á vegum skrifstofu Strandabyggðar sem einnig hefur umsjón með leiðréttingum, reikningagerð og innheimtu.
Birting álagningar, gjalddagar og greiðsla fasteignagjalda
Sú nýbreytni var tekin upp við álagningu og innheimtu fasteignagjalda á síðasta ári að álagningarseðill og greiðsluseðlar voru ekki sendir út á pappír. Álagningarseðill er birtur rafrænt inn á www.island.is (undir pósthólf). Greiðsluseðlar verða birtir í heimabönkum líkt og undanfarin ár en greiðandi getur óskað sérstaklega eftir því á skrifstofu Strandabyggðar að fá greiðsluseðla senda, telji hann þörf á því. Gjalddagar eru 8 talsins og er fyrsti gjalddaginn 1. mars en sá síðasti þann 1. október. Sé fjárhæð fasteignagjalda undir kr. 35.000 er gjalddagi þeirra 1. apríl. Á hverjum greiðsluseðli verður greiðsla á aðeins einum gjalddaga, þannig að eldri seðlar halda gildi sínu. Hafi gjöld ekki verið greidd á eindaga sem er síðasti virkur dagur hvers mánaðar, greiðast dráttarvextir frá gjalddaga.
Sveitastjórn Strandabyggðar ákvað við álagningu fasteignagjalda árið 2018 að álagningarprósenta fasteignagjalda verði óbreytt. Á það sama við um vatnsgjald, holræsagjald og lóðaleigu. Sorpgjöld hækkar milli ára til að koma til móts við kostnað sveitarfélagsins Strandabyggðar vegna sorphirðu í sveitarfélaginu. Fasteignamat á sumarbústöðum og sumarbústaðalóðum hækkaði töluvert milli ára vegna nýs matsvæðis sumarbústaða, sjá frétt frá 2. júní 2017 frá Þjóðskrá www://skra.is. Nánari upplýsingar gefur Þjóðskrá Íslands 515 5300.
Afslættir á fasteignagjöldum fyrir aldraða og öryrkja eru færðir inn sjálfvirkt og koma fram á álagningarseðli.
- Fasteignaskattur A – gjald 0,5% af fasteignamati húss og lóðar
- Fasteignaskattur B – gjald 1,32% af fasteignamati húss og lóðar
- Fasteignaskattur C – gjald 1,51% af fasteignamati húss og lóðar
- Lóðarleiga 2,5% af fasteignamati lóðar
- Holræsagjald 0,25% af fasteignamati húss og lóðar
- Vatnsskattur 0,30% af fasteignamati húss og lóðar þó ekki lægri en kr. 28.637,-og ekki hærri en kr. 38.368,- eða sem nemur 0,5% af fasteignamati húss og lóðar
- Hreinsunargjald rotþróa kr. 13.374,-
- Sorphreinsunargjald á íbúðarhúsnæði í þéttbýli kr. 40.710,-
- Sorphreinsunargjald í dreifbýli kr. 33.560,-
- Sorphreinsunargjald sumarhúsa kr. 20.355,-
Allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu sveitarfélagsins, í síma 451-3510 eða á netfanginu strandabyggd@strandabyggd.is
F.h. sveitarstjórnar Strandabyggðar
Andrea Kristín Jónsdóttir, sveitarstjóri
Til prentunar