Allir út í glugga á þriðjudaginn! Jólaseríurúnturinn 2011
| 09. desember 2011
Íbúar á Hólmavík verða að drífa sig að setja upp síðustu jólaljósin sín um helgina, (já eða bara kaupa fleiri í Kaupfélaginu!), því 5 ára nemendur í leikskólanum Lækjarbrekku munu fara í árlegan jólaseríurúnt um Hólmavík fyrir hádegi þriðjudaginn 13. desember n.k. Íbúar og starfsmenn stofnanna og fyrirtækja eru hvattir til að skarta sínu fegursta og fylgjast vel með í gluggunum þegar hópurinn fer framhjá. Nemendur munu veita viðurkenningu til þeirra sem þeir telja að eigi bestu skreytinguna þetta árið.
Nemendur og starfsfólk hafa í mörgu að snúast þessa dagana eins og sjá má á heimasíðu skólans.
Nemendur og starfsfólk hafa í mörgu að snúast þessa dagana eins og sjá má á heimasíðu skólans.