Áskorun til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
| 11. febrúar 2011
Sveitarfélagið Strandabyggð hefur sent Jóni Bjarnasyni, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, bréf þar sem tekið er undir áskorun hagsmunaaðila í Steingrímsfirði um að bætt verði við ýsukvótann og liðkað fyrir framsali hið fyrsta.
Við Steingrímsfjörð starfa ríflega 20 útgerðir, tvö fyrirtæki í vinnslu á bolfiski og Fiskmarkaður. Um er að ræða útgerðir og fyrirtæki sem hafa á sínum snærum 1 - 10 launþega. Á landsmælikvarða má telja þetta tiltölulega lítil umsvif en sú staðreynd að ekki er hægt að róa vegna skorts á ýsukvóta er samfélögunum við Steingrímsfjörð þungbær.
Í bréfi frá hagsmunaaðilum kemur fram að mikil ýsugengd hafi verið í Húnaflóa undanfarin ár, nokkuð sem ekki þekktist á viðmiðunarárum kvótans.